Ég skemmti mér oft konunglega við að skoða fasteignavefi enda er þar að finna margar leyndar gersemar. Þessi sérstaka íbúð á Hverfisgötu er skemmtilega öðruvísi, svo ekki sé meira sagt.
Stofan er íburðamikil og flygillinn flottur á miðju gólfi.
Í lýsingu á íbúðinni segir: “Stofurnar eru allavega þrjár. Mjög stórt rými sem gefur íbúðinni alveg sérstakt yfirbragð. Um er að ræða “New York Loft Style” rými sem sjaldnast sést í íbúðum í Reykjavík.
”Úr holi er gegnið inn í eina af elstu lyftum Reykjavíkur, sem enn er í notkun, sem er öll yfirfarin og endurgerð að upprunalegri mynd.”

Í eldhúsinu er gaseldavél en athyglisverðast finnst mér hurðaopið.

Þarna gæti ég alveg hugsað mér að kveikja á kertum og dýfa mér í karið. Takið eftir fallegu veggjunum.

Og rúsínan í pylsuendanum, riddarinn sem gætir hallarinnar!
Skemmtilegust finnst mér tilhugsunin um að þvottahúsið er í sameign á fyrstu hæð. Ég myndi alltaf fara niður að þvo í riddarabrynjunni.
Loftið er 224 fermetrar og eru 75 milljónir settar á þessa einstöku íbúð, eða eins og það er orðað í auglýsingunni: “Einstök eign sem erfitt er að lýsa í orðum, sjón er sögu ríkari!!! “



Jááááá sæææææll
Ég hefði seint veðjað á að þetta væri íbúð á Íslandinu!
haha nákvæmlega!!!